Forvarnasvið
Á forvarnasviði er lögð áhersla á að aðstoða einstaklinga til lífstílsbreytinga
Hér er horft til líkamlegs, andlegs og félagslegs heilbrigðis með það að markmiði að lifa eins eðlilegu og gefandi lífi og mögulegt er. Með heildrænni nálgun er leitast við að sporna við frekari þróun sjúkdóms eða færniskerðingar.
Meginþættir endurhæfingar á forvarnarsviði eru einstaklingsmiðuð þjálfun og margvísleg fræðsla.

