Heilsuefling
Meðferð á heilsueflingarlínu hentar þeim sem þurfa aðstoð við að taka upp heilbrigðari lífshætti. Meðferðin getur komið að haldi þeim sem þurfa aðstoð við að vinna upp þrek og komast í betra ástand, t.d. að ná sér eftir erfið veikindi og skurðaðgerðir eða að fá bót á þreytu eftir sýkingar. Þeir sem hafa langvinna sjúkdóma svo sem lungnateppu, sykursýki eða húðsjúkdóma geta haft gagn af meðferðinni. Einnig kemur hún þeim að haldi sem vilja bæta lífshætti sína vegna áhættuþátta ýmissa sjúkdóma, t.d. þeim sem þurfa aðstoð til að hætta reykingum.
Mismunandi markmið eru sett með hverjum dvalargesti fyrir sig en oftast byggir meðferð á hæfilegri blöndu af hreyfingu, hvíld og slökun. Notaðir eru hinir ýmsu möguleikar sem í boði eru á stofnuninni, eftir því sem við á í hverju tilviki.
Læknir og hjúkrunarfræðingur hafa eftirlit með þeim sem skráðir eru á heilsueflingarlínu.

