Hjartasjúkdómar

Hjartalína.

Meðferð vegna hjartasjúkdóma fer fram á hjartalínu. Algengast er að meðferðin vari í 4 vikur. Hún er ætluð þeim sem hafa andlegt og líkamlegt atgerfi og vilja til að taka þátt í þeirri meðferð sem í boði er.
Meðferðin gagnast m.a. þeim sem hafa:

  • gengist undir hjarta- eða kransæðaaðgerðir
  • fengið hjartaáfall
  • kransæðaþrengsli eða önnur æðaþrengsli
  • áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma t.a.m. háþrýsting, sykursýki eða blóðfitutruflanir.


Markmiðið með meðferðinni er að auka hæfni einstaklingsins til að lifa sem eðlilegustu lífi þrátt fyrir sjúkdóminn og að auka lífsgæði með því að:

  • auka líkamlegt þrek og færni
  • hindra framgang sjúkdóms
  • bæta svefn
  • draga úr streitu eða stjórna henni
  • bæta næringarástand
  • draga úr háþrýstingi
  • lækka blóðfitur
  • hætta reykingum

Þjálfun
Þjálfunaráætlun er sniðin að getu og þörfum hvers og eins og er þá gjarnan stuðst við niðurstöður áreynsluprófs. Aðstaða til að taka slíkt próf er á Heilsustofnun og metur læknir hvort þörf er á slíkri rannsókn.
Þátttakendur stunda m.a. þrek- og styrktarþjálfun í velbúnum tækjasal, þolgöngu utandyra, leikfimi, vatnsleikfimi og slökun.
Öll þjálfun er undir eftirliti sjúkraþjálfara eða íþróttakennara. Fylgst er með blóðþrýstingi, hjartsláttartíðni(púls) og súrefnismettun eftir þörfum á meðan þjálfað er í tækjasal.

Fagteymi metur þörf fyrir frekari einstaklingsmeðferð.

Fræðsla
Öllum dvalargestum stendur til boða margþætt fræðsla.
Eintaklingar sem tilheyra hjartalínu eru sérstaklega hvattir til að mæta í eftirtalda fyrirlestra:

  • Hjartasjúkdómar, áhættuþættir og lífshættir.
  • Mataræði
  • Svefn
  • Hreyfing og streitustjórnun
  • Að halda áfram þjálfun


Ef þörf þykir er í boði sérstakur stuðningur við að hætta reykingum eða breyta mataræði. Fyrir þá sem glíma við andlega erfiðleika er boðið upp á stuðningsviðtal.

Hverjir koma að meðferðinni?
Hópur fagfólks vinnur saman að framkvæmd allrar meðferðar á hjartalínu í náinni samvinnu við þátttakandann. Þetta eru læknir, hjúkrunarfræðingur, sjúkraþjálfari, íþróttakennari og sjúkraliði.


Rannsóknir hafa sýnt fram á gildi þjálfunar og bættra lífshátta bæði sem forvörn og til þess að hindra framgang sjúkdóms.

Ávinningur af þjálfun:

  • Minni æðakölkun
  • Bætt blóðflæði til hjartavöðvans og annarra vöðva
  • Lækkun blóðfitu, betra hlutfall góðu blóðfitunnar
  • Blóðþrýstingur og hvíldarpúls lækka, minna álag á hjarta og æðakerfi
  • Aukin afkastageta hjartavöðvans, betri nýting súrefnis
  • Aukið þrek og færni
  • Efling öndunarfæra, minni mæði
  • Minni andleg spenna og kvíði, betri svefn
  • Auðveldar að halda líkamsþyngd (ofþyngd) í skefjum
  • Aukin lífsgæði


Í flestum tilfellum er um fjölþættan vanda að ræða og á HNLFÍ er leitast við að taka á sem flestum áhættuþáttum auk þess sem þjálfun og fræðsla er höfð eins markviss og kostur er. Við leggjum áherslu á að þjálfun og heilbrigðir lífshættir þurfa að vera fastur liður í lífinu og að við berum öll nokkra ábyrgð á eigin heilsu.
Fyrir útskrift leiðbeinum við einstaklingum með þjálfun og lífshætti eftir að heim kemur og leitum leiða í samvinnu við einstaklinginn til að viðhalda þeim árangri sem náðst hefur á dvalartímanum.