Offita
Meðferð vegna offitu fer fram á O línu.
Það gildir um offitu að sé ekki tekið í taumana heldur fólk áfram að þyngjast. Mörgum tekst að létta sig tímabundið en yfirleitt gengur ekki eins vel að viðhalda þyngdartapinu og flestir þyngjast aftur. Gagnsemi þess að takast á við offitu með lífsstílsbreytingum byggir á því að einstaklingnum takist að tileinka sér heilbrigðari lífshætti og fái þar með jákvæð áhrif á heilsu sína.
Meðferð á O línu hentar þeim sem eru of feitir og tilbúnir til að breyta lífsháttum sínum til frambúðar. Meðferðin miðast við fjögurra vikna dvöl á Heilsustofnun og möguleika á endurkomu u.þ.b. sex mánuðum síðar.
Markmiðið er heilsuefling.
Á Heilsustofnun er starfandi þverfaglegt teymi, O teymi, sem vinnur saman að meðferð þeirra sem koma á O línu. Áhersla er lögð á góða samvinnu við dvalargesti og unnið með þeim að því að gera breytingar sem nauðsynlegar eru hverju sinni. Í teyminu eru læknir, hjúkrunarfræðingur, sjúkraþjálfari, íþróttakennari, næringarráðgjafi, sálfræðingur og sjúkraliði.
Markmið með starfi O teymis á Heilsustofnun er að:
- vinna að heilsueflingu of feitra þ.e. að efla andlega, líkamlega og félagslega heilsu og auka þar með heilsutengd lífsgæði með öllum þeim ráðum sem HNLFÍ hefur upp á að bjóða,
- þátttakendur tileinki sér heilbrigðari lífshætti eftir útskrift og séu færir um að gera nauðsynlegar breytingar óháð þyngdartapi.
Einnig er unnið að því að þátttakendur:
- tileinki sér hollt og fjölbreytt mataræði, reglulegar máltíðir og hæfilegar skammtastærðir,
- geti nýtt sér lystarhygli (appetite awareness training). Þjálfun í því að átta sig á tilfinningum um svengd og seddu og forðast öfgar í báðar áttir,
- geri hreyfingu að hluta af daglegu lífi, velji sér þá tegund hreyfingar sem best hentar og geti notið þess að stunda hana,
- finni þá leið sem best hentar til að draga úr streitu í daglegu lífi,
- setji sér markmið og vinni að þeim.
Ef talin er þörf á því er veitt einstaklingsmeðferð (sjúkraþjálfun, sjúkranudd, nálastungur, vatnsmeðferð o. fl.). Einnig getur þátttakanda verið vísað í stuðning til reykleysis, stuðningsviðtöl hjá sálfræðingi og viðtöl hjá næringarráðgjafa eftir því sem ástæða þykir til.
Væntingar um árangur
Væntingar um þyngdartap hafa oft verið miklar. Margir hafa ætlað sér að léttast mikið, en offitumeðferð með lífsstílsbreytingum skilar að meðaltali 5-10% þyngdartapi. Fæstir ná því þyngdartapi sem þeir stefndu að og í ljós hefur komið að margir upplifa að þeim hafi mistekist, þegar sá árangur næst ekki. Við lítum svo á að árangur meðferðar geti verið betur metinn með öðrum mælikvörðum og teljum það verulegan heilsufarslegan ávinning að geta tamið sér það að stunda reglulega hreyfingu, borða hollt og fjölbreytt fæði og draga úr streitu. Þegar öllu er á botninn hvolft er það heilsan sem öllu máli skiptir, heilsa óháð holdafari.

