Heilsubúð

Afgreiðslutími alla virka daga 11.30-15.30

 

 

Vertu velkomin!

Í Heilsubúð HNLFÍ er boðið upp á vörur sem dekra við líkama og sál.  Þar er einnig að finna gott úrval af fatnaði í öllum stærðum s.s. íþrótta og sundfatnað.  Heilsubúðin leggur einnig áherslu á að bjóða upp á vörur sem notaðar eru af fagfólki HNLFÍ m.a. frá Urtasmiðjunni og Purity Herbs.   


Í boði eru vörur m.a. frá:  Speedo, Fashy, Crocs, Pompea, Pure Lime, Jako, PAS, Sloggi, Cintamani, Crabtree & Everlyn, Urtasmiðjunni, Purity Herbs, Optima, Flexitol, A-Derma, Loréal,  Green & Black auk margra annarra. 

 

 

Auk þess er boðið upp á valdar vörur sem framleiddar eru á HNLFÍ s.s. Heilsute, uppskriftabækling og á sumrin er boðið upp á lífrænt ræktað grænmeti úr gróðurhúsunum.

 

Heilsubúð HNLFÍ er öllum opin og þar er lögð rík áhersla á að veita hlýlega og persónulega þjónustu.