Hvað er Gjörhygli?

Gjörhygli í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði

ATH. Gjörhyglinámskeið eru eingöngu fyrir þá sem eru skráðir áður en þeir koma til dvalar

Upplýsingar um Hugleiðslu - Gjörhygli

Gjörhygli er þýðing á enska orðinu mindfulness og á rætur sínar annars vegar í hugrænni atferlismeðferð og hins vegar í aldagamalli hugleiðsluhefð austurlanda.

Á síðari árum hefur nútíma sálfræði og læknisfræði sýnt þessum gömlu aðferðum æ meiri áhuga og æ fleiri rannsóknir hafa birst á allra síðustu árum sem hafa sýnt fram á að gjörhygli nýtist afar vel fólki sem er að berjast við verki, háþrýsting, svefnerfiðleika, hjarta- og æðasjúkdóma og krabbamein. Gjörhygli nýtist einnig við sálfræðilegum vandamálum s.s. endurteknu þunglyndi, streitu, kulnun, kvíða og ofsakvíða Gjörhygli er einfaldlega það að vita hvað er að gerast á meðan það er að gerast. Einsetja sér að beina athyglinni að því sem er að gerast hvert andartak, hlutlaust og án þess að taka afstöðu, einfaldlega sjá það sem er.

Tími í gjörhygli byrjar oft á hugleiðslu og í gjörhyglitímum förum við inn og út úr hugleiðslu, þess á milli eru umræður og aðrar æfingar. Enginn er þó neyddur til að tala frekar en hann vill sjálfur og við ræðum aðeins um það sem gerist hér og nú. Það hefur tekið langan tíma að móta huga okkar eins og hann er. Hugsanaferlið er oft orðið bæði vanabundið og sjálfvirkt. Við breytum því ekki svo auðveldlega nema að við séum tilbúin til þess að leggja á okkur talsverða vinnu við að læra nýjar leiðir.

Til þess að námskeiðið nýtist þér er afar mikilvægt að æfa á milli tímanna og þú þarft að gera ráð fyrir u.þ.b. klukkustund á hverjum degi. Heimavinnan felst aðallega í því að hlusta á diska með hugleiðslu og hugleiða daglega. Því miður eru ekki geislaspilarar inni á herbergjum, þannig að það er best að þáttakendur komi með geislaspilara að heiman.

Kennarar eru: Margrét Arnljótsdóttir og Bridget Ýr McEvoy

“Gjörhygli er að beita athyglinni , á sérstakan hátt: með ásetningi, í núinu og hlutlaust" Jon Kabat-Zinn