27.01.2012 04:26:18
Dvalargestir eru einstakir

Gjöf afhent HNLFÍ

Hópur fólks tók saman höndum um að safna fyrir Pool borði sem þörf hefur verið á um áraraðir. Svo vel safnaðist eða um 110 þúsund að hópurinn ákvað að leggja einnig til fjármagn til að kaupa leirbakstra fyrir sjúkranudd- og hjúkrunardeild. Þeir sem fara fyrir hópnum eru; Guðleifur Kristjánsson, Gústav Hannesson, Ólafur framkvæmdastjóri, Bjarni Geir Alfreðsson, Valdimar Júlíusson, Gerður Harðardóttir, Helgi Óskarsson, Þuríður Guðrún Aradóttir og Ólafur H. Jónsson.

Einnig var nú í vikunni staðið fyrir Bingói en þar safnaðist alls kr.65.000 sem rennur til Hollvinasamtaka HNLFÍ sem er að safna fyrir nýjum rúmum hér á Heilsustofnun. Þeir sem stóðu fyrir Bingóinu eru; Birna Óladóttir, Elías Ketilsson og Ásdís Árnadóttir

Starfsfólk Heilsustofnunar þakkar innilega fyrir frábært framtak og þennan mikla stuðning sem kemur sér einkar vel!!

Til Baka