Félag gulrófnabænda opnar heimasíðu
Það er sannarlega heilsusamleg frétt frá Félagi gulrófnabænda þegar fréttist af nýrri heimasíðu félagsins www.rofa.is.
Þessi síða er eins og nafnið bendir til um rófuna vekja athygli á og viðhalda þeirri virðingu sem hún hefur. Bent er á að hin íslenska gulrófa er bæði frábært snakk, full af A og C vítamíni, fitusnauð og þar með grennandi góðmeti.
Heimasíðan er ný og á eftir að taka breytingum eins og gengur, en þarna inni má finna mikið af uppskriftum og krækjur inn á enn fleiri. Einnig má finna sögu rófunnar og næringagildi hennar.





