Herbergi fyrir MND sjúklinga opnað á HNLFÍ
Laugardaginn 8. desember 2007 verður vígt sérbúið herbergi fyrir MND sjúklinga á Heilsustofnun NLFÍ. Með samstilltu átaki margra aðila eins og Hollvinasamtaka HNLFÍ , MND félagsins ásamt fjölda fyrirtækja og einstaklinga, sem hafa lagt fram fé eða vinnu, hefur tekist að innrétta vel búið herbergi fyrir MND sjúklinga. Vígslan mun hefjast kl. 11 á laugardaginn og eru allir velunnarar velkomnir. Boðið verður upp á veitingar og við vígsluna verður afhjúpaður skjöldur með styrktaraðilum verkefnisins. Herbergið verður kennt við Magneu Karlsdóttur (Maggý) sem lést af völdum MND 2005.



