13.08.2012 10:55:05
Vottun fyrir fyrstu lífrænu veitingaþjónustuna

Vottunarstofan Tún hefur staðfest að Grand Hótel Reykjavík við Sigtún í Reykjavík uppfylli reglur
um meðferð lífrænna matvæla við framreiðslu á lífrænum hluta morgunverðar. Vottorð þessa efnis
var formlega afhent við hátíðlega athöfn á Grand Hótel Reykjavík í gær, fimmtudaginn 9. ágúst.
Með þessu er brotið blað í sögu vottunar lífrænnar framleiðslu hérlendis þar sem Grand Hótel
Reykjavík er fyrsta íslenska fyrirtækið til að hljóta vottun á lífrænni veitingaþjónustu.

sjá nánar hér

Til Baka