18.09.2012 01:42:16
Ómerkt erfðabreytt matvæli í verslunum

Ný rannsókn sýnir að all margar matvörur sem innihalda erfðabreytt efni eru seldar í verslunum hér á landi án þess að um það sé getið á vörumerkingum. Frá og með síðustu áramótum tók gildi reglugerð sem kveður á um að merkja skuli matvæli sem innihalda erfðabreytt efni.

Neytendasamtökin, Matvæla- og veitingafélag Íslands og Náttúrulækningafélag Íslands könnuðu nýverið úrval amerískra matvæla í helstu matvöruverslunum höfuðborgarsvæðisins. Valdar voru 12 vörutegundir sem talið var hugsanlegt að innihaldi erfðabreytt efni. Til þess að ganga úr skugga um hvort svo væri voru sýni send til greiningar í rannsóknarstofu Genetic-ID í Þýskalandi.

Í ljós kom að níu af þessum 12 vörutegundum reyndust innihalda erfðabreytt efni en ekki er tilgreint um erfðabreytt innihald þeirra á vörumerkingum þrátt fyrir að það sé skylt. Þessar níu vörutegundir eru:
Shop Rite Corn Flakes (morgunkorn)
Pop Corners (snakkflögur)
Doritos Cool Ranch Tortilla Chips (snakkflögur)
Maís Hveiti (bökunarmjöl)
EAS Advent (súkkulaðidrykkur ætlaður líkamsræktarfólki)
Mass Muscle Gainer (orkudrykkur ætlaður líkamsræktarfólki)
Zone Perfect (orkubiti)
EAS Advanced Edge (orkubiti)
EAS Lean 15 (orkubiti).

SJÁ ALLA FRÉTTATILKYNNINGUNA HÉR

Til Baka