04.02.2008 12:00:00
Sigrún Vala Björnsdóttir sjúkraþjálfari á HNLFÍ hlaut styrk úr vísindastjóði Fræðslunets Suðurlands

Sigrún Vala Björnsdóttir sjúkraþjálfari á Heilsustofnun NLFÍ, hlaut styrk Vísinda-og rannsóknarsjóðs Fræðslunets Suðurlands fyrir árið 2007. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands afhenti henni styrkinn á hátíðarfundi Fræðslunetsins sem haldinn var í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Alls bárust 16 umsóknir um styrki úr sjóðnum að þessu sinni. Styrkfjárhæðin var 750 þúsund krónur.

Verkefni Sigrúnar Völu nefnist "Árangur nýrrar meðferðar við langvinnum stoðkerfisverkjum á Íslandi" það er doktorsverkefni í lýðheilsuvísindum við Sjúkraþjálfunarskor Háskóla Íslands.

Til Baka