Sumardagurinn fyrsti 2008 á HNLFÍ
HNLFÍ heldur upp á sumardaginn fyrsta með því að bjóða gestum og gangandi að neyta sérstaks hádegisverðar og síðdegishressingar á stofnuninni í tilefni dagsins.
Kjöt er ekki á matseðlinum en boðið er upp á fiskrétt tvisvar í viku og mikið framboð er af mjólkurvörum. Ekki er boðið upp á kaffi en þess í stað er boðið upp á venjulegt te og te hússins sem er gert úr þekktum íslenskum lækningajurtum. Litið er á matinn sem hluta af fræðslu og meðferð dvalargestanna. Þeir sem eru í megrun fá fræðslu um rétta skammtastærð, einnig er boðið upp á orkubætt fæði og næringardrykki fyir þá dvalargesti sem á því þurfa að halda. Þeir sem þurfa á sérfæði að halda fá ráðgjöf hjá næringarráðgjafa. Reglulega er boðið upp á sýnikennslu í gerð grænmetisrétta sem matreiðslumeistari sér um.
Það er stefna HNLFÍ að hafa sem minnst af unnum matvælum, við veljum okkar hráefni mjög vandlega og allur matur er eldaður frá grunni á staðnum.
Brauðið er bakað á staðnum og er 100 % heilhveiti. Hluti af grænmetinu og öðrum matjurtum sem boðið er upp á er lífrænt ræktað í eigin gróðurhúsum. Gróðurhúsin og allt landsvæði Heilsustofnunar er yfirlýst svæði án erfðabreyttra lífvera.





