09.05.2008 12:00:00
Kjörinn fyrsti varaforseti Evrópusambands heilsustofnana


Gunnlaugur K. Jónsson kjörinn fyrsti varaforseti Evrópusambands heilsustofnana

Gunnlaugur K. Jónsson forseti Náttúrulækningafélags Íslands (NLFÍ),  stjórnarformaður rekstrarstjórnar Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði og stjórnarmaður í Heilsulindarsamtökum Íslands, var 7. maí  2008 kjörinn fyrsti varaforseti Evrópusambands heilsustofnana (European Spas Association - ESPA) á aðalfundi sambandsins í Yverdon-les-Bains í Sviss.

Meginstefna ESPA, sem mynduð eru af aðildarfélögum frá 21 Evrópulandi, er að kynna heilsulindir og böð í Evrópu og gæta þess að náttúrulegir meðferðarkostir jarðvegs loftslags og sjávar séu almenningi sem aðgengilegastir.  Með sama hætti er tilgangur samtakanna m.a. að koma á og efla samvinnu við opinbera aðila og einkaaðila í vísindum, embættiskerfi, efnahagslífi, á félagslegum og menningarlegum sviðum, og stuðla að hagnýtingu náttúruauðlinda til verndar og bóta á lýðheilsu.

Innan aðildarfélaga ESPA eru á annað þúsund fyrirtæki og stofnanir auk heilsumiðstöðva, heilsuhótela og sveitarfélaga.  Starfsmenn skipta hundruðum þúsunda og árleg velta er talin í tugum milljarða Evra. Verkefni ESPA eru m.a. ákveðin með hliðsjón af auknum samskiptum og samrunaferlum innan Evrópu.  Með stefnuskrá sambandsins hyggst ESPA setja fram samræmt skipulagsform sem auðveldar samstarf á milli þjóða.  Það er síðan skylda hvers aðildarsambands að skilgreina aðstæður í sínu landi með setningu „landsstefnuskrár“ en þeim er m.a. ætlað að auðvelda skilgreiningu sértækra vandamála hvers lands í samhengi við fjölþjóðleg rök eftir því sem þörf er á.

Eitt meginverkefna ESPA undanfarin ár hefur verið að þróa gæðastaðla „Quality Standards“ í þeim tilgangi að tryggja gæði þjónustunnar. Úttektir taka m.a. til aðstöðu til lækninga, meðferðar- og hvíldaraðstöðu, gæða- og öryggismála, sund-, bað-, og gufubaðsaðstöðu auk gistiaðstöðu. Mikil áhersla er lögð á heilnæmt, rólegt og öruggt umhverfi.

Til að öðlast gæðavottun sambandsins, gæðavottum sem t.a.m. tryggingarfélög í Evrópu líta til vegna skjólstæðinga sinna, verða þeir sem eftir henni óska að uppfylla a.m.k. 80% af  gæðakröfum sambandsins sem eru ítarlega skilgreindar í gæðastöðlum þess.  Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði stóðst þessa úttekt á síðasta ári og fékk umrædda gæðavottun, fyrst sambærilegra heilsustofnana/fyrirtækja á Norðurlöndum. 

Starf ESPA er unnið án ágóðasjónarmiða. Skrifstofur sambandsins eru í Brussel í Belgíu. Forseti ESPA er Dr. Ing. Sigrun Lang frá Þýskalandi en hún lét nýlega af starfi borgarstjóra Baden-Baden í Þýskalandi.

Til Baka