30.05.2008 12:00:00
Jarðskjálfti og viðbrögð HNLFÍ

Viðbrögð við jarðskjálftanum þann 29. maí 2008 voru fumlaus og til fyrirmyndar hjá öllum þeim er þátt tóku. Fyrstu viðbrögð voru að starfsmenn komu dvalargestum út úr húsum og hlúðu að þeim. Síðan komu fyrirmæli frá Almannavörnum Ríksins að rýma hús á svæðinu. Þá var ekki annað hægt en að tilkynna gestum að þeir gætu ekki reiknað með að dvelja á stofnuninni næstu daga. Því var hafist handa við að skipuleggja heimferðir gesta. Með aðstoð Lögreglu Höfðuborgarsvæðisins og Björgunarsveitarinnar í Hveragerði var brottflutningur skipulagður og þeim hjálpað til að pakka því nauðsynlegasta niður. Þeir gestir sem voru á einkabílum fóru á þeim en aðrir með rútum sem voru útvegaðar á staðinn. Allir gesti dvöldu í góðu yfirlæti utandyra í sól og blíðu á meðan á þessu stóð og þeim var færð teppi og drykkir. Því má bæta við að enginn gesta okkar slasaðist og það erum við mjög þakklát fyrir.

Þar sem mikið af ýmsum lausamunum eyðilagðist þá má gera ráð fyrir að það taki um eina viku að koma öllu í samt lag. Hús HNLFÍ eru vel byggð og skemmdust lítið.

Haft verður samband við alla dvalargesti símleiðis í næstu viku og þeir látnir fylgjast með framvindu mála.

 

Frekari upplýsingar eru veittar í síma 483 0300 virka daga á milli 08 og 16, utan þess tíma svarar hjúkrunarvakt í síma 483 0327 eða 483 0328.

 

Við þökkum svo öllum þeim sem komu að þessu máli og vonumst til að gestir okkar sýni okkur skilning.

 

Með bestu kveðjum frá starfsfólki HNLFÍ.

Til Baka