20.08.2008 02:56:51
Ný æfingatæki í tækjasal Heilsustofnunar

Sjúkraþjálfarar hjá HNLFÍ

Það er ánægjulegt að segja frá því að keypt hafa verið ný æfingatæki í tækjasalinn okkar. Þau eru af gerðinni Life Fitness og eru eins og þjálfunartæki gerast best í dag.
Keypt voru ellefu tæki fyrir styrktarþjálfun, sex þrekhjól og þrjú annarskonar upphitunartæki sem við nefnum fjallgöngu, skíðagöngu og hjól með bakstuðningi.
Þetta mun bæta mjög aðstöðu fyrir dvalargesti og auka möguleika okkar á fjölbreytni í þjálfun.
Við sem vinnum með tækin erum hæstánægð með þau og viðbrögð dvalargesta hafa verið afar jákvæð.
Við hlökkum til að vinna með tækin í vetur og þökkum Heilsustofnun fyrir þetta góða framtak.

Sjúkraþjálfarar og íþróttakennararar HNLFÍ.

Til Baka