Krúska - verslun og matstofa
Krúska er verslun og matstofa að Suðurlandsbraut 12 í Reykjavík sem býður upp á fjölbreyttan mat - heita rétti og súpur. Krúska er í eigu Náttúrulækningafélags Íslands og er matargerðin miðuð út frá megintilgangi félagsins: „Að efla og útbreiða þekkingu á lögmálum heilbrigðs lífs og á heilsusamlegum lifnaðarháttum“. Krúska leggur áherslu á hollan og vandaðan mat sem hægt er að taka með sér heim eða borða á staðnum.





