Haiti söfnun á Heilsustofnun
Dvalargestir Heilsustofnunar safna fyrir Haiti!
Mikið er um að vera í daglegu starfi á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði og fær einstaklingsframtakið að njóta sín í samfélagi þar sem kjörorðin eru „Berum ábyrgð á eigin heilsu“.
Á dögunum stóðu Ásdís Árnadóttir og Eyja Þóra Einarsdóttir ásamt fleirum fyrir veglegu Bingói á Heilsustofnun og var þátttakan mjög góð. Dvalargestir á Heilsustofnun létu ekki sitt eftir liggja og söfnuðust alls kr.87.704. Andvirðið var lagt inn á reikning Rauða Kross Íslands.
Á myndinni eru Ásdís Árnadóttir og Eyja Þóra Einarsdóttir

