21.04.2010 09:14:55
Troðið út úr dyrum á málþingi

Þriðjudaginn 20.apríl var haldið málþing á vegum fræðslunefndar Náttúrulækningafélags Íslands sem bar yfirskriftina "Mataræði og heilsufar. Málþingið var haldið á Grand Hótel og hófst kl.20:15 

Gífurleg aðsókn var á samkomuna sem lauk ekki fyrr en undir kl.23:00 enda voru margar fyrirspurnir úr salnum til frummælenda.

Úrdráttur úr fyrirlestrum og helstu fyrirspurnir verða birtar á heimasíðunni www.nlfi.is innan tíðar.

Til Baka