Ný hjól fyrir dvalargesti HNLFÍ
Heilsustofnun keypti á dögunum ný Schvinn Sierra reiðhjól frá Hjólabæ á Selfossi. Hjólin eru ætluð til almennra nota fyrir dvalargesti en verða einnig notuð í skipulagðar hjólaferðir sem dvalargestir geta tekið þátt í.

