28.05.2010 01:20:34
Þríþraut Harðar Harðarsonar - Álmaðurinn

Fimmtudaginn 27.maí var haldin þríþrautarkeppnin „ÁLMAÐURINN“ en hún hófst í útisundlaug Heilsustofnunar kl.14:00
Fyrir keppninni stóð Hörður Harðarson á Kríumýri í Flóa.
Hörður er með þessu átaki að minna á og hvetja fólk til að stunda útivist og hreyfingu til að bæta lífsgæði og heilsufar þegar árin færast yfir, en Hörður varð einmitt 55 ára í þennan dag.

Keppnin fór þannig fram að um 10 manns á aldrinum 30-55 ára hófu keppni í sundlaug Heilsustofnunar kl.14:00 og syntu 40 ferðir (1km). Annar áfangi var reiðhjólakapp niður Ölfus og austur fyrir Selfoss (35,5 km) og þriðji áfanginn var skokkaður að Kríumýri í Flóa (6,2km).
Samtals eru þetta 42,7 km)

SJÁ NÁNAR FRÉTT ÚR SUNNLENSKA

Skemmtileg og hressandi uppákoma sem fór fram í fjórum sveitarfélögum en listi yfir keppendur og úrslit verða kynnt á heimasíðu okkar innan fárra daga.

Til Baka