Heilsuefling starfsmanna HNLFÍ
Sumarferð starfsmanna HNLFÍ í ár verður farin á Snæfellsnes með það markmið að klífa Snæfellsjökul laugardaginn 12 júní. Bækistöðvar verða á Arnarstapa. Undirbúningur hefur verið fyrir ferðina í nokkrar vikur og verið gengið á ýmsum stöðum.
Ingþór Bjarnason verður fararstjóri en hann þekkir Snæfellsjökul eins og lófann á sér ! - Gangan hefst kl.10:00 að morgni 12.júní.
Föstudaginn 4.júní verður gengið á Hengilinn en það er síðasta formlega æfingaferðin fyrir Snæfellsjökul.
Dröfn íþróttakennari og Sverrir, maðurinn hennar verða fararstjórar.
Gangan tekur u.þ.b. 5 klukkustundir og er 13-15km.

