Ekki um að ræða 46 prósenta niðurskurð á Heilsustofnun NLFÍ
Í fréttum á RUV þ.10.júní sl. kom fram hjá heilbrigðisráðherra að ekki yrði skorið niður um allt að 46% til viðbótar við fyrri niðurskurð hjá Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Tillögur um þennan mikla niðurskurð höfðu verið kynntar vikuna áður fyrir forsvarsmönnum HNLFÍ. Mikil óvissa greip um sig hjá starfsfólki HNLFÍ og einnig hjá fjölda dvalargesta sem bíða eftir dvöl og/eða þekkja starfsemi HNLFÍ. Engin skrifleg staðfesting liggur fyrir um hver niðurskurður verður en gert ráð fyrir að jafnræði gildi við niðurskurð á þjónustusamningum í heilbrigðisþjónustu.
sjá nánar frétt frá RUV http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4498019/2010/06/10/1/
Ingi Þór Jónsson
Heilsustofnun NLFÍ

