Tékkar í heimsókn á Heilsustofnun
.jpg)
Þessa dagana eru 5 heilbrigðisstarfsmenn frá Tékklandi í heimsókn hjá okkur. Um er að ræða 4 sjúkraþjálfara og einn lækni, en þau starfa við sjúkrahús í 50þús manna þorpinu Jablonec sem er stutt frá landamærum Þýskalands og Póllands. Sjá nánar hér : www.nemjbc.cz
Tilgangur heimsóknar þeirra er að kynnast starfsemi Heilsustofnunar NLFÍ og vonandi læra eitthvað af starfsfólki okkar. Jafnframt munu þau kynna sinn starfsvettvang og skiptast á skoðunum um starfsaðferðir í sjúkraþjálfun.
Þau ætla einnig að nota tækifærið og ferðast aðeins um landið, skoða náttúrperlur og upplifa íslenskt sumar.
Þetta er skemmtilegur hópur sem vonandi hefur gagna og gaman af heimsókn til okkar.
Fyrir hópnum fer Petr Sifta yfirsjúkraþjálfari og með honum eru Lenka Michalkova, Hana Machnikova, Lucie Jakešova og Alena Balcarova

