Nýjar Spa-íbúðir á Heilsustofnun
.jpg)
Heilsustofnun hefur tekið í notkun 3 glæsilegar íbúðir sem íslenskir og erlendir ferðamenn geta leigt til lengri eða skemmri tíma.
Hver íbúð er með einu svefnherbergi, eldhúsi, stofu, salerni og lítill forstofu. Íbúðirnar eru vel búnar með sjónvarpi, dvd, fullkomin tölva með snertiskjá, og í stofu er þægilegur svefnsófi sem rúma tvo.
Íbúðirnar eru á lóð Heilsustofnunar og er innifalið í dvöl, aðgangur að Baðhúsinu Kjarnalundi sem er með inni og útisundlaug, heitum pottum, sauna og vatnsgufubað og víxlböðum. Einnig er aðgangur að heilsurækt innifalinn.
Gestir í Spa-íbúðum geta fengið dvöl með mat inniföldum eða keypt sér stakar máltíðir. Meðferðir eru í boði fyrir þá sem vilja og má þar nefna , leirböð, nudd, heilsuböð og nálastungur. sjá hér: Stakar meðferðir
Hægt er að fá upplýsingar um íbúðirnar í síma 4830300 eða á netfangið heilsu@hnlfi.is
.jpg)
.jpg)
.jpg)


