18.08.2010 12:03:51
Ný stjórn Sjúkratrygginga Íslands

(mbl.is) Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, hefur skipað nýja stjórn Sjúkratrygginga Íslands til fjögurra ára. Skipt var um alla stjórn stofnunarinnar. 

Ný stjórn er þannig skipuð: Dagný Brynjólfsdóttir, viðskiptafræðingur og deildarstjóri í heilbrigðisráðuneytinu, formaður Til vara: Hólmfríður Grímsdóttir lögfræðingur.

Garðar Mýrdal, eðlisfræðingur. Til vara: Dýrleif Skjóldal, leikskólakennari

Jóhannes Pálmason, lögfræðingur. Til vara: Björg Bára Halldórsdóttir, nemi

Kristinn H. Gunnarsson, fyrrv. alþingismaður. Til vara: Ellert Schram, fyrrv. alþingismaður.

Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, stjórnsýslufræðingur. Til vara: Stefán Jóhann Stefánsson, þjóðhagfræðingur.

Til Baka