Streituklíník - hefst í október
„
bjóða svona meðferð hér á landi,“
segir Magna Fríður Birnir, hjúkrunarforstjóri
á Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði. Stofnunin fer
af stað með streituklíník í október
þegar fyrsti tilraunahópurinn
fer í gegnum streitumeðferð sem
þróuð hefur verið á stofnuninni.
Meðferðin er sett upp að erlendri
fyrirmynd og er reynsla Heilsustofnunarinnar
nýtt í bland.
Ákveðið var að setja upp streituklíník
í Hveragerði vegna þess að
eftir hrun skapaðist markaður
fyrir það. „Við fórum að fá meira
af beiðnum frá fólki sem vildi
koma inn í styttri tíma og hafði
ýmis streitueinkenni. Fólk finnur
fyrir auknum kröfum frá atvinnurekendum,
til dæmis að sjúkrafrí
eru ekki vinsæl. Það kemur
ekki bara frá fólkinu sjálfu að því
finnist það ekki geta verið lengi í
burtu heldur er líka pressa í þjóðfélaginu,“
segir Magna og bætir
við að meðferðin hafi verið í þróun
og vinnslu innan faghópa frá síðasta
vetri og í sumar.
Streitumeðferðin tekur tvær
vikur. Markmið hennar er fyrst
og fremst að kenna fólki að takast
á við og þola streitu betur að sögn
Mögnu. „Það eru til ýmiss konar
módel sem kenna fólki að meta sig
sjálft. Hver er staða þín í dag, af
hverju er þessi streita til staðar og
hvaðan kemur hún?“ Eftir að uppspretta
streitunnar hefur verið
fundin er fólki kennt að forgangsraða.
„Og síðan að finna einhver
meðul við þessum þáttum.“
Magna nefnir dæmi um streituvalda
sem fólki er kennt að takast
á við. „Segjum sem svo að fólk
sé í mjög lélegu líkamsástandi og
svo er hræðsla við að missa vinnuna
undirliggjandi. Þá getum við
opnað dyr fyrir fólki að eigin meðferð,“
segir Magna en fólk getur
prófað mismunandi líkamsræktarleiðir
og stuðningsviðtöl hjá sálfræðingum,
hjúkrunarfræðingum
og næringarráðgjöfum á Heilsustofnuninni.
„Sálfræðingar eru kannski að
bjóða ýmiss konar streitumeðferð
en þeir hafa ekki möguleika
á að bjóða fólki að prófa og reyna
sjálft til dæmis dáleiðslu, tai chi,
jóga, vatnsleikfimi, hollan mat,
gönguferðir, hjólreiðar og nudd.
Við getum boðið upp á þetta allt
saman hér á staðnum,“ upplýsir
Magna. martaf@frettabladid.is



