07.10.2010 09:29:12
Fundur framkvæmdastjórnar ESPA

ESPA -Heilsulindarsamtök Evrópu héldu á dögunum árlegan haustfund framkvæmdastjórnar. Skipulagning heimsóknarinnar var í höndum Náttúrulækningafélags Íslands og HNLFÍ sem er aðili að ESPA. Fundurinn var haldinn hér á HNLFÍ föstudaginn 17.september.Gunnlaugur K. Jónsson forseti NLFÍ og formaður rekstrarstjórnar HNLFÍ er fyrsti varaforseti samtakanna.


ESPA samtökin voru stofnuð árið 1995 og eru regnhlífarsamtök fyrir Heilsulindir í Evrópu. Það var einkar ánægjulegt að fá hópinn til landsins en þau dvöldu í góðu yfirlæti hjá HNLFÍ í Hveragerði. Meðfram fundinum voru skipulagðar ferðir með hópinn og var m.a. farið í Hellisheiðarvirkjun, siglt á Jökulsárlóni og farið í Landmannalaugar. Í lok heimsóknarinnar var vel tekið á móti hópnum í Bláa Lóninu og þar snæddur glæsilegur kvöldverður.  - Mikil ánægja var með þessa heimsókn og voru gestir okkar mjög hrifnir af landi og þjóð.

Gestir Espa voru:
Dr. Sigrun Lang, forseti Espa
Joachim Lieber, framkvæmdastjóri Espa
Dr. Janka Zálesaková
Nicu Radulescu
Dr. Kurt Von Storch
Reinhard Petry

nánar má skoða um samtökin hér http://www.espa-ehv.com/ 

 

Til Baka