27.10.2010 10:13:33
Safnadagar á Suðurlandi

Safnahelgi á Suðurlandi verður dagana 5.-7.nóvember og tekur Heilsustofnun NLFÍ þátt í þeirri dagskrá; sjá nánar hér

Matsalur Heilsustofnunar, fimmtudagur 4. - sunnudagur 7. nóv.
Kl. 11:45-12:45 Girnilegur grænmetishádegisverður alla daga,
1.350 kr., ½ gjald fyrir 7-12ára.
Kl. 18:15-19:15 Léttur kvöldverður
1.250 kr., ½ gjald fyrir 7-12 ára.

Sundlaug - Baðhúsið Kjarnalundur
Laugardagur 6. nóv og sunnudagur 7. nóv
kl.10:00-17:30 Innilaug, útilaug, heitir pottar, nuddpottar, víxlböð,
sauna og vatnsgufa. 50% afsláttur fyrir alla gesti
safnahelgar.

Minningarherbergi Jónasar Kristjánssonar læknis
Opnunartími: föstud. 5. nóv. kl.15:00-16:00
laugard.- sunnud. 6. og 7. nóv. kl.13:00-15:00
Í ár eru 140 ár síðan Jónas Kristjánsson læknir fæddist (f.1870).
Heilsustofnun er uppskera baráttu þessa atorku- og hugsjónamanns, en
draumur hans rættist þegar Heilsuhælið var formlega opnað 1955.
Minningarherbergi Jónasar hefur staðið óbreytt frá því að Jónas lést þ. 3.
apríl 1960, en þar bjó hann síðustu ár ævi sinnar.

nánar um dagskrá á http://www.sunnanmenning.is/

Til Baka