01.11.2010 03:00:56
Streitumeðferð og streituskóli

Fyrsta námskeiðið í streitustjórnun hefst seinnipartinn í nóvember. Innifalið eru fræðslufyrirlestrar sem fara fram fimmtudaginn 18. nóvember og laugardaginn 20. nóvember ásamt einstaklingsviðtölum hjá Erlu Gerði Sveinsdóttur lækni og Sigrúnu Ásu Þórðardóttur sálfræðingi. Einnig er farið í gegnum heilsumat með Maríönnu Csillag hjúkrunarfræðingi og fríkort í Heilsuborg í tvær vikur fylgir. Námskeiðinu lýkur svo með viðtali hjá sálfræðingi að átta vikum liðnum þar sem farið er yfir stöðu mála og árangur metinn. Verð: 55.000 krónur.
Verð fyrir dvöl á Heilsustofnun fer eftir hvaða herbergi er valið.
Sjá verðlista. Athugið að þessi verð eru miðuð við að beiðni um dvöl á Heilsustofnun hafi borist frá lækni. Rétt er að benda á að sjúkrasjóðir stéttarfélaganna taka flestir þátt í að niðurgreiða meðferð, hvort sem er í Streituskóla eða á Heilsustofnun NLFÍ. Nánari upplýsingar hér

Til Baka