16.12.2010 10:23:29
Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir fær viðurkenningu

Stjórn NLFR ásamt Kolbrúnu

Náttúrulækningafélag Reykjavíkur veitir Kolbrúnu Björnsdóttur grasalækni viðurkenningu
Stjórn Náttúrlækningafélags Reykjavíkur veitir árlega viðurkenningu til fyrirtækja og eða einstaklinga.Valið byggir á 3.grein laga félagsins frá 1949 um að Náttúrulækningafélagið styðji við bakið á þeim sem leggja sig fram við að stuðla að góðri heilsu og forvörnum.
Einkunnarorð félagsins eru “Berum ábyrgð á eigin heilsu”
Viðurkenningu ársins 2010 hlýtur Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir.
Kolbrún Björnsdóttir fær viðurkenningu fyrir opnun fyrsta jurtaapóteks á Íslandi. Kolbrún leggur áherslu á heildræna lækningu með jurtum og réttu mataræði. Hún útbreiðir þekkingu á lögmálum heilbrigðs lífs og kennir mönnum að varast sjúkdóma með heilsusamlegum lifnaðarháttum

Viðurkenningin var afhent í Jurtaapótekinu Laugavegi 2, miðvikudaginn 15. desember 2010
Um Kolbrúnu:
Kolbrún útskrifaðist úr námi í grasalækningum í Bretlandi frá School of phytotherapy 1993. Hún fór fljótlega að vinna sjálfstætt sem grasalæknir.
Hún hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeið tengda jurtum og mataræði í gegnum árin. Í desember 2004 stofnaði Kolbrún Jurtaapótekið við Laugaveg 2. Starfsemin þar hefur blómstrað og leita nú þangað árlega fjöldi fólks.

Starfsemi Jurtaapóteksins felst m.a. í
- ráðgjöf með fæðu og jurtir
- framleiðslu á eigin vörum til að bæta heilsu
- kennslu – námskeiðum og fyrirlestrum

Til Baka