20.04.2005 12:00:00
Þjónustuíbúðir á lóð HNLFÍ

Fyrsta 8 íbúða áfanganum í smíði ÍAV á allt að 100 þjónustuíbúðum í litlum sérbýlum við Heilsustofnunina lauk í nóvember 2004. Þessar íbúðir hafa vakið mikla athygli og fluttu fyrstu íbúarnir inn í nóvember 2004. Íbúarnir eiga kost á margvíslegri þjónustu frá Heilsustofnuninni svo sem heilbrigðis- og öryggisþjónustu, ýmiskonar umsjón og matþjónustu. Þegar hefur verið hafist handa við að reisa næsta áfanga sem áætlað er að verði tilbúinn haustið 2005.

Til Baka