Lífshlaupið á Heilsustofnun
Heilsueflingarteymi Heilsustofnunar HNLFÍ hefur skráð starfsfólk til leiks í Lífshlaupinu dagana 2.-22.febrúar. Starfsfólk skipast í allt að 10 manna hópa og er einn liðstjóri fyrir hvern hóp. Nánari upplýsingar eru á www.lifshlaupid.is - skrá má alla hreyfingu s.s. Zumba, dans, hjólreiðar, ganga, boltaleikir, skokk, hlaup, útreiðar, leikfimi eða hvaða líkamsrækt og hreyfing sem er. Koma svo!!




