07.02.2011 10:10:14
Málþing - Jafnvægi og vellíðan - Líf án streitu

Sjá auglýsingu um málþing 

Aðalfrummælandi málþingins er Ingibjörg H. Jónsdóttir prófessor og yfirmaður við Streiturannsóknarstofnun  Gautaborgar en hún kemur hingað til lands frá Svíþjóð í tilefni af málþinginu.
Ingibjörg hefur stýrt rannsóknum á streitu allt frá árinu 2005. Hún segir frá nýjum niðurstöðum í rannsóknum og fjallar í erindi sínu um marga mikilvæga þætti  m.a. hversu mjög einstaklingsbundinn  vandinn er og þeim gríðarlegu áhrifum sem hann getur haft á líf okkar og heilsu.

Hróbjartur Darri  Karlsson kemur með mjög athyglisverða nálgun, sem sérfræðingur í hjartalækningum.

Sigrún Ása  Þórðardóttir sálfræðingur kemur með sýn út frá erfiðleikum á borð við kvíða, þunglyndi og átraskanir tengda streitu. Hún hefur starfað mikið með unglingum og aðstandendum þeirra.

Allir frummælendur koma með lausnir og leiðir til að nýta streitu til góðs og þar með betra lífs með jafnvægi og vellíðan.

Til Baka