Húsfyllir á málþingi um Streitu
Þriðjudaginn 8.febrúar var haldið málþing á vegum Fræðslunefndar Náttúrulækningafélags Íslands sem bar yfirskriftina Jafnvægi og vellíðan - Líf án streitu. Þrátt fyrir óveður var fullt út úr dyrum í fundarsalnum Hvammi á Grand Hótel, enda frábærir fyrirlesarar á ferðinni.
Fyrirlestrarnir verða aðgengilegir á slóðinni www.nlfi.is
Fundarstjóri: Magna Fríður Birnir
Frummælendur:
Ingibjörg H. Jónsdóttir, dósent í lífeðlisfræði
og yfirmaður Streiturannsóknarstofnunar Gautaborgar.
“Streituvandamál – orsakir – afleiðingar - besta lausnin”
Hróbjartur Darri Karlsson, hjartalæknir
“Streitan sem skemmir hjartað”
Sigrún Ása Þórðardóttir, sálfræðingur og verkefnisstjóri HNLFÍ
“Að meta eigin streitu og streituvalda”
Auk frummælenda sitja fyrir svörum:
Lárus Ólafsson, sölumaður “Tekið í taumana - reynslusaga”



