Rekstur sumarhótels í húsakynnum Heilsustofnunar
www.hotspringshotel.is Í sumar verður rekið sumarhótel í tvo mánuði í húsakynnum Heilsustofnunar. Tímabilið sem um ræðir er frá 20.júní til 20.ágúst. Sérstakt rekstrarfélag er um reksturinn og er lögð áhersla á að ná til íslenskra og erlendra ferðamanna. Boðið er upp á ýmsa valkosti varðandi gistingu http://www.hotspringshotel.is/accomodation og einnig lögð áhersla á heilsutengda þjónustu varðandi meðferðir s.s. leirbað og nudd http://www.hotspringshotel.is/treatments. Baðhúsið býður einnig upp á góða aðstöðu með inni og útisundlaug, heitum pottum, sauna og vatnsgufu og víxlböð.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.hotspringshotel.is






