Heilsustofnun hafði fullt samráð við Vinnumálastofnun
Fréttablaðið laugardaginn 5.mars 2011
Ummæli Unnar Sverrisdóttur, forstöðumanns stjórnsýslusviðs Vinnumálastofnunar, í Fréttablaðinu í gær um að Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði hafi ekki haft samráð við VMS vegna uppsagna starfsmanna voru byggð á misskilningi. NLFÍ hafði samráð um málið við starfsstöð VMS á Selfossi. „Vinnumálastofnun þykir leitt ef svör starfsmanna hafa leitt af sér misskilning um þetta efni og ef umrædd frétt hefur orðið til þess að varpa rýrð á HNLFÍ,“ segir Unnur. HNLFÍ hefur sagt upp 38 starfsmönnum vegna fyrirhugaðrar níu vikna lokunar Heilsustofnunarinnar í sumar. Áætlað er að starfsmennirnir nýti sumarfrí sitt þann tíma sem stofnunin er lokuð en fái ekki laun frá stofnuninni þann tíma sem orlofið nær ekki yfir. Af hálfu HNLFÍ var kannað hjá Auði Guðmundsdóttur, yfirmanni starfsstöðvar VMS á Selfossi, hvort starfsmennirnir gætu átt rétt á bótum til að brúa bilið. „Hennar mat var
jákvætt enda var haft fullt samráð við hana um þessar aðgerðir,“ segir Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heilsustofnunarinnar. Í Fréttablaðinu í gær
sagðist Unnur hins vegar hafa svarað slíkri fyrirspurn frá manni frá Náttúrulækningafélaginu neitandi. Ólafur segir þær Unni og Auði nú báðar telja að HNLFÍ hafi staðið rétt að málinu. „Þó undrar mig að það virðist sem þær túlki lögin á mismunandi hátt og það veldur ruglingi í öllu þessu máli. Unnur nefnir að andi laganna sé ekki í þessa veru. Auður varaði okkur ekki við því,“ segir Ólafur. Unnur ítrekar að slíta þurfi ráðningarsambandi til að einstaklingur eigi rétt á að sækja um atvinnuleysisbætur. „Umsóknir þeirra starfsmanna HNLFÍ sem sagt hefur verið upp störfum, berist þær, munu að sjálfsögðu fá eðlilega meðhöndlun og meðferð í samræmi við stjórnsýslulög og lög um atvinnuleysistryggingar,“



