05.10.2011 02:59:59
Starfsemin óbreytt á Heilsustofnun

Samkomulag hefur verið undirritað við Sjúkratryggingar Íslands um óbreytta þjónustu þar til nýr þjónustusamningur hefur verið undirritaður. Þetta tryggir áframhaldandi örugga þjónustu á Heilsustofnun NLFÍ og tekur af alla óvissu um reksturinn.

Í góðri samvinnu við Sjúkratryggingar Íslands er unnið að því að ganga frá langtímasamningi við Heilsustofnun, stefnt að því að ljúka þeirri vinnu fyrir áramót.

Eftir viðræður við heilbrigðisyfirvöld síðustu misserin erum við fullviss um að Heilsustofnun mun halda áfram að þjónusta íslenska heilbrigðiskerfið á komandi árum.

Ólafur Sigurðsson
framkvæmdastjóri Heilsustofnunar NLFÍ

Til Baka