17.09.2007 12:00:00
Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði fær gæðastaðal ESPA

Gæðastaðall ESPA

Samtök Evrópskra Heilsustofnana (ESPA) eru samtök heilsustofnana með aðsetur í Brussel. Innan vébanda þeirra eru 24 aðildarfélög frá 21 löndum Evrópu en innan vébanda aðildarfélaganna eru 838 heilsustofnanir. Helsta stefnumál þeirra er að vinna að samstarfi félagsmanna, byggja upp þekkingu og gæta að hagsmunum félagsmanna sinna. Eitt meginverkefni þeirra síðustu árin hefur verið að þróa gæðastaðla. Þessir staðlar (quality standards) eru til þess að tryggja gæði starfseminnar, þ.e. meðferða og húsnæðis. Staðlarnir eru veittir stofnunum eftir ítarlega úttekt og verða þær að standast 80% af kröfum samtakanna til að fá gæðamerki ESPA sem kallast EUROPESPA.

Úttektin tekur til yfir 400 mismunandi atriða, helstu flokkar eru:

  • gæða og öryggismála
  • meðferða og hvíldaraðstöðu
  • aðstöðu til lækninga
  • sund-, bað-, og gufuaðstöðu
  • gistiaðstöðu
  • matsals og eldhúss
  • annarrar meðferðaraðstöðu
  • frístundamöguleika jafnt á stofnuninni sem og í nágrenni hennar.

Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, sem er meðlimur í ESPA, var veittur þessi gæðastaðall þann 8. september 2007. Heilsustofnun er stofnun númer 20 til að fá þessa viðurkenningu hjá ESPA.

Framkvæmdastjóri ESPA Mr. Joachim Lieber afhenti stjórnarformanni stofnunarinnar, Gunnlaugi K. Jónssyni og framkvæmastjóra hennar, Ólafi Sigurðssyni gæðavottorðið á Landsþingi NLFÍ í Hveragerði.

Til Baka