Þjónustusamningur til 5 ára
5 ára samningur við Sjúkratryggingar Íslands
Á milli jóla og nýárs undirrituðu fulltrúar Sjúkratrygginga Íslands(SÍ) og NLFÍ þjónustusamning til næstu 5 ára. Velferðarráðherra samþykkti einnig samninginn þ.30.des s.l.
Þar með er lokið langri samningalotu á milli faghóps og samninganefndar NLFÍ annars vegar og fulltrúa SÍ hins vegar. Mikil sátt ríkir um niðurstöðu samningsins og eru bundnar vonir við að hann tryggi samningsaðilum stöðuleika í rekstri og góða þjónustu.



