07.01.2012 03:45:49
Ræktun erfðabreyttra lífvera

Afstaða Náttúrulækningafélags Íslands gagnvart erfðabreytingum úti í náttúrunni hefur verið alveg skýr frá árinu 2003 en frá því ári hefur félagið lýst sitt umráðasvæði í Hveragerði án erfðabreyttra lífvera en nánar er hægt að skoða það hér.

Náttúrulækningafélag Íslands hefur einnig sent frá sér ályktanir frá árinu 2003 og má skoða ályktanir frá landsþingi á árinu 2011 hér

Ýmsar greinar hafa birst um erfðabreytingar á Íslandi og er alveg ljóst að ekki eru allir á eitt sáttir um stefnu í þessum málum. Stefna NLFÍ er alveg skýr og félagið mun vinna að því að Ísland verði án erfðabreytinga úti í náttúrunni í framtíðinni. Varðandi þær greinar sem hafa birst frá þeim sem eru fylgjandi erfðabreytingum þá hafa ýmsir aðilar vogað sér að dylgja um það að þeir sem eru ekki hlynntir erfðabreytingum fari fram með offorsi og öfgum. Náttúrulækningafélag Íslands fordæmir slíka umræðu og áskilur sér rétt til að hafa skoðun á umhverfismálum nú sem fyrr. Hér má lesa eina af þeim greinum sem félagið hefur látið fara frá sér um þessi mál: Gunnlaugur K. Jónsson forseti NLFÍ

UMRÆÐA SÍÐUSTU VIKNA

Á síðustu vikum hefur verið kröftug umræða um starfsleyfi til ræktunar erfðabreyttra lífvera að Reykjum í Ölfusi. Hér fyrir neðan má lesa erindi sem Náttúrulækningafélagið sendi til Umhverfisstofnunar þ.30.desember 2011.

Náttúrulækningafélag Íslands(NLFÍ) gerir eftirfarandi athugasemdir vegna veitingu starfsleyfis Umhverfisstofnunar til ræktunar erfðabreyttra líffvera í gróðurhúsum LBHÍ að Reykjum í Ölfusi.

Í ljósi þess hve áhættusöm og umdeild framleiðsla og meðferð erfðabreyttra lífvera er, og í ljósi þeirra fjölþættu hagsmuna sem í húfi kunna að vera, meðal annars fyrir starfsemi og ímynd NLFÍ, Hveragerðis, og nánasta nágrennis bæjarins, átelur NLFÍ að ekki hafi farið fram almenn og opinber kynning á umsókn ORF Líftækni hf. um leyfi til sn. afmarkaðrar notkunar erfðabreyttra lífvera í gróðurhúsum Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum í Ölfusi, svo sem heimilt er samkvæmt gildandi lagareglum. Almenn grenndarkynning var ekki gerð á málinu. Ekki virðist hafa verið tekið neitt tillit til athugasemda sem sveitarfélagið Ölfus lagði fram um málið.

NLFÍ fer þess á leit að leyfisveiting þessi verði endurskoðuð, m.a. vegna skorts á almennri kynningu á málinu, og vegna ófullnægjandi ákvæða í leyfisbréfi Umhverfisstofnunar er varða afmörkunarráðstafanir. En þar er sett það skilyrði að “sem minnst” af erfðabreyttum lífverum berist út í umhverfið. Með þessu er afmörkun sett í lægsta mögulega flokk án viðhlítandi röksemda, án þess að “sem minnst” sé skilgreint nánar, og þar með opnað fyrir þann möguleika að erfðabreyttar lífverur berist út í umhverfið, sem er andstætt anda lagareglnanna. Með hliðsjón af mikilli nálægð umræddrar ræktunaraðstöðu við starfsemi NLFÍ í Hveragerði, svo og að gróðurhúsin á Reykjum eru ofar í hlíðinni og í nánd við Varmá, er hér um mögulega ógn að ræða gagnvart vottaðri lífrænni ræktun í garðyrkjustöð HNLFÍ.

Til Baka