09.01.2012 09:36:42
Læknir óskast til starfa við Heilsustofnun NLFÍ

Læknir óskast til starfa við Heilsustofnun NLFÍ (HNLFÍ) í fullt starf eða hlutastarf.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Skoða auglýsingu

HNLFÍ nær yfir breitt svið endurhæfingar og heilsueflingar og þar er lögð rík áhersla á að
auka og efla þátt hugtakanna heilbrigði og heilsuvernd í umræðu og verkum.
Í 56 ára sögu starfseminnar hefur HNLFÍ forðast kennisetningar sem ekki standast
vísindalega gagnrýni. Margskonar sérmenntun lækna nýtist til starfsins.
Fríar ferðir eru til og frá Reykjavík (Rauðavatn) til og frá vinnu.
Heilsufæði, frír aðgangur að baðhúsi og tækjasal ásamt góðum
vinnufélögum sem sameiginlega skapa góðan vinnustað.

Nánari upplýsingar fást hjá Ólafi Sigurðssyni framkvæmdastjóra, olafur@hnlfi.is, sími 896 5557.
eða Erlu Gerði Sveinsdóttur yfirlækni, erla@hnlfi.is sími 860 1950.

Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2012.
Umsóknir með ferilskrá
sendist til: HNLFÍ - starfsmannastjóri, Grænumörk 10, 810
Hveragerði eða aldis@hnlfi.is.
Öllum umsóknum verður svarað.

Til Baka