24.01.2012 11:17:09
Nýr þjónustusamningur til næstu 5 ára

Nýr samningur milli NLFÍ og SÍ til næstu 5 ára
Um s.l. áramót var undirritaður nýr þjónustusamningur milli Náttúrulækningafélags Íslands og Sjúkratrygginga Íslands um þverfaglega endurhæfingu fyrir sjúkratryggða einstaklinga. Samningurinn er til næstu 5 ára.

Breyttar áherslur – aukin þjónusta HNLFÍ
Við þá þverfaglegu endurhæfingu sem Heilsustofnun NLFÍ hefur unnið að á síðustu árum mun bætast við á samningstímanum þjónusta til þeirra einstaklinga sem þurfa þyngri endurhæfingu í kjölfar sjúkrahússvistar og/eða vegna tiltekinna sjúkdóma.
Áætlað er að nýjar áherslur samningsins verði innleiddar á komandi mánuðum og 1.september 2012 verður sú nýbreytni að fullu innleidd.
Aukin þjónusta til almennings verður kynnt á næstunni en ýmsir möguleikar eru í boði s.s. heilsudvöl í lengri og skemmri tíma auk lækningatengdrar ferðaþjónustu.

Þjónustusamninginn má skoða hér

Berum ábyrgð á eigin heilsu

Til Baka