HNLFÍ; fræðasetur
Fræðasetur Jónasar Kristjánssonar læknis á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands.
Við Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði var árið 1995 sett á stofn fræðasetur í minningu Jónasar Kristjánssonar læknis.
Nýlega var innréttuð íbúð til afnota fyrir fræðimenn úr heilbrigðisstétt sem er boðin afnot af íbúðinni til þess að stunda rannsóknir sínar. Æskilegt er að þessar rannsóknir tengist meðferðarstefnu Heilsustofnunar NLFÍ. Í því samhengi er heilsuvandi einstaklinganna skoðaður með það í huga að líta þurfi á andlegt, líkamlegt og félagslegt ástand í samhengi. Meðferðarstefnan felur m.a. í sér þá viðleitni að koma á og viðhalda eðlilegum og heilbrigðum tengslum á milli einstaklingsins og umhverfis hans og efla varnir líkama og sálar gegn hverskonar vanheilsu og sjúkdómum.
Einstaklingar úr heilbrigðisstéttum eru hvattir til að senda inn umsóknir til yfirlæknis HNLFÍ og er gert ráð fyrir allt að mánaðardvöl í senn. Innifalið í dvölinni er fullt fæði á HNLFÍ, aðgangur að tækjasal, baðhúsi og bókasafni HNLFÍ.
Skilyrði er að viðkomandi flytji eitt fræðsluerindi um rannsóknir sína fyrir starfsfólk HNLFÍ á meðan á dvöl hans stendur í íbúðinni. Þegar rannsóknaniðurstöður verða birtar er mælst til þess að þar verði tekið fram að rannsóknin hafi verið unnin með stuðningi frá HNLFÍ.
Íbúðin:
- 2ja herbergja íbúð, 52 fm.
- Vel búin öllum helstu þægindum.
- Svefnherbergi er með tvíbreiðu rúmi með heilsudýnu.
- Í stofu er svefnsófi fyrir tvo, stofuborð, sjónvarp, video/DVD, útvarp og sími.
- Góð vinnuaðstaða í stofunni, skrifborð, tölva með internet tengingu og prentara.
- Baðherbergi með sturtu.
- Eldhús er með borðstofuborð fyrir fjóra og öllum helstu eldhúsáhöldum.
- Íbúðinni fylgja handklæði og sloppar fyrir fjóra.
Umsóknir sendist til innlagnastjóra HNLFÍ, Grænumörk 10, 810 Hveragerði eða í póstfang beidni@hnlfi.is. Gera má ráð fyrir tveggja vikna afgreiðslu á umsókninni.
Frekari upplýsingar veitir innlagnastjóri í síma 483 0300.




