Hlutverk hjúkrunarvaktar HNLFÍ

  • Að veita einstaklingshæfða endurhæfingarhjúkrun eins og best þekkist á hverjum tíma
  • Að tryggja að komið sé til móts við andlega, líkamlega og félagslega þörf skjólstæðinga
  • Að hafa eftirfylgni með skjólstæðingum sem ekki fylgja meðferðarátælun
  • Að undirbúa útskrift í samvinnu við aðstandendur, skjólstæðing, heimahjúkrun, heimilishjálp og aðra aðila eftir því sem við á
  • Að tryggja öryggi skjólstæðinga með vöktun öryggiskerfa, samhæfðum viðbrögðum við fyrstu hjálp og hvers kyns vá
  • Að uppfylla skyldur um hjúkrunarskráningu samkvæmt lögum frá landlæknisembættinu og þeim vinnureglum sem stofnunin setur sér

Aðgerðir hjúkrunarvaktar sem styðja markmið HNLFÍ

  • Í komuviðtali er safnað upplýsingum og markmið skjólstæðinga skráð
  • Í viðtali viku eftir komu er farið yfir samhæfingu meðferðar og meðferðarheldni, leytast er við að virkja áhugahvöt skjólstæðingsins til endurhæfingar
  • Með skipting mannafla hjúkrunarvaktar milli fagteyma og þjónustulía
  • Í skipulögðum meðferðarviðtölum innan þjónustulína
  • Með hjúkrunargreiningu hjá þeim skjólstæðingum sem ekki fylgja skipulögðu endurhæfingar programmi
  • Með byltumat hjá skjólstæðingum sem eru eldri en 67 ára
  • Með víðtæku eftirliti fræðslu og ráðgjöf til skjólstæðinga um endurhæfingu, heilsueflingu, næringu, verkun og aukaverkanir lyfja
  • Með starfsþróun

Sértæk verkefni hjúkrunarvaktar

  • verkjameðferð
  • stuðningsviðtöl
  • slökunarmeðferð / yoga
  • bakstrameðferð
  • sykursýkiseftirlit
  • blóðþrýstingseftirlit
  • hreyfimeðferð / fylgd
  • næringarráðgjöf
  • aðstoð við ADL
  • sárameðferð
  • húðmeðferð
  • minnisþjálfun
  • svefnmeðferð 
  • eftirlit með verkun og aukaverkunum lyfja