Hlutverk sjúkraþjálfunar á HNLFÍ

  • að veita skjólstæðingum stofnunarinnar gagnreynda sjúkraþjálfun eftir því sem kostur er og best þekkist á hverjum tíma
  • að veita einstaklingsmiðaða meðferð sem nær til byggingar og starfsemi líkamans, færni hans í daglegum athöfnum og þátttöku hans í samfélaginu í samráði við skjólstæðing
  • að fyrirbyggja, greina og meðhöndla truflun á færni og starfshæfni einstaklinga
  • að útbúa meðferðarskrá með hliðsjón af getu og væntingum skjólstæðings
  • að veita skjólstæðingum einstaklings og/eða hópmeðferð eftir því sem við á
  • að vinna í nánu samstarfi innan teyma og veita meðferð í samræmi við ákvarðanir teymanna
  • að stuðla að og taka þátt í rannsóknum í endurhæfingu

Aðgerðir sjúkraþjálfunar sem styðja markmið HNLFÍ

  •  að greina og meðhöndla truflun á hreyfingum líkamans
  • að bæta færni í daglegum athöfnum
  • að finna leiðir til aukinnar þátttöku í samfélaginu
  • að bæta hreyfistjórn
  • að draga úr verkjum
  • að kenna líkamsbeitingu
  • að auka líkamsvitund
  • að draga úr bjúg eða bólgu
  • að meðhöndla vandamál í bandvef, örvef, taugavef, vöðvum eða sinum
  • að meðhöndla jafnvægistruflun
  • að auka styrk og þol
  • að auka göngufærni / göngugetu
  • að bæta samhæfingu
  • að flýta fyrir sáragróanda
  • að aðstoða skjólstæðinga við að finna viðeigandi hjálpartæki sem gerir þeim kleift að auka færni sína og sjálfbjargargetu
  • fræðslufyrirlestrar /kennsla og ráðgjöf
  • hvatningarviðtöl