Sumarlokun vegna framkvæmda
Í sumar verður Heilsustofnun NLFÍ (HNLFÍ) lokað í fjórar vikur, frá 6. júlí til 6. ágúst. Unnið verður að nauðsynlegum lagfæringum á 28 herbergjum á Gullströnd en sú álma var tekin í notkun árið 1975.
Árlega koma um 1800 dvalargestir í læknisfræðilega endurhæfingu á HNLFÍ og um 500 læknar senda okkur endurhæfingarbeiðni fyrir sína skjólstæðinga. Meðaldvalartími er fjórar vikur. Frá stofnun HNLFÍ árið 1955 hafa tugþúsundir Íslendinga fengið einstaklingsmiðaða endurhæfingu hér.
Nauðsynlegt er að loka stofnuninni í þessar fjórar vikur á meðan lagfæringar standa yfir. Lögð er áhersla á að upplýsa skjólstæðinga okkar, heimilislækna, sérfræðinga og aðra þá sem vísa á eða nýta sér þjónustu HNLFÍ, um þessa lokun. Við minnum á að beiðnir þurfa að berast sem fyrst vegna innlagna eftir 6. ágúst.
Matseðill dagsins
Sveppasúpa
Heilhveitipasta með Blönduðu Grænmeti í Hvítlaukssósu
Salatbar, "hlaðborð af hollustu", ferskt salat,grænmeti, kornmeti, hnetur og fræ



