Markmið meðferðar á HNLFÍ

Sjónarhorn þjónustu

  • Að auka heilsutengd lífsgæði og vellíðan skjólstæðinga stofnunarinnar með því að auka andlega og líkamlega hreysti skjólstæðings
  • Að tekið sé mið af markmiðum, þörfum, aðstæðum og óskum skjólstæðinga stofnunarinnar við val á meðferð
  • Að aðstoða við að finna leiðir til að halda áfram eftir útskrift að auka eða viðhalda árangri sem náðst hefur

Sjónarhorn skjólstæðinga

  • Að skjólstæðingur Heilsustofnunar læri að bera ábyrgð á eigin heilsu og sé samstarfsaðili heilbrigðisfagfólks um heilsueflandi meðferð
  • Að auka eða viðhalda starfshæfni eða líkamlega færni í daglegu lífi og getu til sjálfsbjargar

Sjónarhorn verklags á HNLFÍ

  • Að fylgja gagnreyndri þekkingu um endurhæfingu
  • Að samhæfa og skipuleggja þverfaglega meðferð, fylgjast með framkvæmd hennar og meta árangur
  • Að þróa meðferðarform endurhæfingar
  • Að sinna 2. stigs forvörnum þar sem skjólstæðingar eru aðstoðaðir við að breyta lífsstíl sínum, draga úr slysahættu og líkum á að þeir þrói með sér sjúkdóma eða álagseinkenni
  • Auka möguleika dvalargesta á því að stunda sjálfsmeðferð (self care) og kynna þeim bjargráð sem þeir sjálfir geta beitt og aukið þannig lífsgæði sín
  • Að veita skjólstæðingi upplýsingar um meðferðarúrræði sem ná útfyrir ramma HNLFÍ
  • Að þróa heilsuskóla HNLFÍ, veita víðtæka fræðslu til skjólstæðinga um endurhæfingu, forvarnir og heilsueflingu
  • Að stunda markvissa skráningu með notendavænum upplýsingakerfum

Sjónarhorn mannauðs

  • Að bæta og viðhalda faglegri þekkingu meðal starfsmanna

Sjónarhorn rannsókna

  • Að stunda rannsóknir sem sem auka þekkingu á gildi, meðferð og árangri endurhæfingar

Sjónarhorn fjármála

  • Að hafa aðgengilegar áreiðanlegar upplýsingar um rekstur og starfsemi stofnunarinnar.
  • Að uppfylla skilyrði þjónustusamnings við HTR