Hollvinir
Hollvinasamtök Heilsustofnunar NLFÍ
voru stofnuð á 50 ára afmæli HNLFÍ þann 24. júlí 2005 í húsakynnum stofnunarinnar.
Helstu markmið Hollvinasamtaka HNLFÍ í Hveragerði eru eftirfarandi:
Hollvinasamtök HNLFÍ eru samtök sem hafa það að leiðarljósi að styrkja starfsemi stofnunarinnar eftir fremsta megni, fjárhagslega eða á annan hátt.
Hollvinasamtökin eru öllum opin sem áhuga hafa á starfsemi HNLFÍ í Hveragerði og vilja standa vörð um framtíð stofnunarinnar.
Markmið samtakanna er að efla samkennd um mikilvægi stofnunarinnar fyrir alla landsmenn.
Vettvangur Hollvinasamtakanna er allt landið með fundaaðstöðu á skrifstofu HNLFÍ/NLFÍ í Hveragerði/Reykjavík.
Við hvetjum þá sem vilja gerast stofnfélagar að skrá sig.
Árgjaldi er stillt í hóf, 3.000 kr.
Með vinsemd og virðingu
Stjórn Hollvinasamtaka HNLFÍ
Ólafur Gränz, formaður
Róbert Hlöðversson varaformaður
Guðný E. Ísaksdóttir gjaldkeri
Oddný Mattadóttir ritari
Jóna Einarsdóttir meðstjórnandi
Skoðunarmenn:
Helga Kristjánsdóttir
Katrín Hjálmarsdóttir


