Staðsetning

Heilsustofnun NLFÍ er í Hveragerði, sem er lifandi og blómlegur bær, rétt austur af höfuðborginni.
Aksturinn frá Reykjavík að þessum friðsæla og fallega stað tekur aðeins um það bil 30 mínútur eftir þjóðvegi 1. 

Yfirlitskort af Hveragerði

Hveragerði hefur lengi verið einn vinsælasti ferðamannabær á Íslandi. Það sem gerir Hveragerði að einum fjölsóttasta bæ landsins er nábýli hans við jarðhitann, því bærinn er byggður á hverasvæði og af því dregur hann nafn. Fáir bæir í veröldinni geta státað af virku jarðhitasvæði í hjarta bæjarins, vellandi hverum, hvæsandi gufuaugum og á sumrin iðandi blómahafi.

Vegna jarðhitans hefur garðyrkja frá fyrstu tíð verið einn aðalatvinnuvegur Hvergerðinga, enda Hveragerði oft kallað blómabærinn og af því tilefni haldið veglegt blómaball ár hvert. Ferðamenn hafa auk blóma og trjáplantna getað keypt nýtt og ferskt grænmeti á góðu verði. Á síðari árum hafa margir dvalið í Hveragerði sér til hvíldar og heilsubótar í lengri eða skemmri tíma. Sundlaugin í Laugaskarði, sem um árabil var stærsta sundlaug landsins, er rómuð fyrir skemmtilega staðsetningu en þar eru m.a. heitir pottar, nuddpottur, ljósabað og náttúrulegt gufubað. Göngustígakerfi innanbæjar er með ágætum og unnið markvisst að því að tengja leiðirnar saman og merkja, þannig að þær myndi eina samfellda heild. Þjónusta hefur löngum verið góð við ferðamenn og gistirými með því mesta sem gerist á Suðurlandi, og Hveragerði því tilvalinn staður til ráðstefnuhalds allt árið um kring. Bærinn er vel staðsettur, fjarri ys og þys höfuðborgarsvæðisins, en þó rétt innan seilingar.

Frá Hveragerði er fljótfarið til margra af merkustu ferðamannastaða Suðurlands, má þar nefna Gullfoss, Geysi, Skálholt og Þingvelli. Umhverfis Hveragerði er ósnortin náttúra, sannkölluð paradís fyrir útivistarfólk. Nokkru fyrir norðan bæinn er eitt af stærstu hitaorkubúrum landsins, Hengilsvæðið, svipmikið og hrjóstrugt með gufustróka á víð og dreif sem teygja sig til himins. Frá Hveragerði liggja þangað göngu- og reiðstígar og ná þeir alla leið til Nesjavalla og Þingvalla. Á leiðinni eru volgar laugar og lækir sem hægt er að baða sig í. Í nágrenni bæjarins er Garðyrkjuskóli ríkisins á hinu forna stórbýli, Reykjum í Ölfusi, þar sem margir höfðingjar hafa gert garðinn frægan s.s. Gissur Jarl og Hálfdan lögréttumaður.

Öflug upplýsingamiðstöð er í hjarta bæjarins þar sem hægt er að nálgast allar almennar upplýsingar um svæðið.


Samgöngur eru með miklum ágætum í Hveragerði. Vegagerðin sér um að ryðja heiðina á veturna og er hafist handa snemma morguns ef þörf er á. Hellisheiði er því sjaldan ófær, en ef svo ber undir eru Þrengslin yfirleitt opin. SASS hefur ályktað um nauðsyn lýsingar á Hellisheiði og er full samstaða meðal sveitarfélaga á svæðinu um mikilvægi þeirra framkvæmda fyrir allt kjördæmið. Reglulegar áætlunarferðir eru frá BSÍ alla daga.